Ágreiningsmál og ferill vegna brota á prófa- og verkefnareglum

Ef nemandi er staðinn að því að nota óleyfileg gögn, veita eða þiggja hjálp frá öðrum nemanda, telst hann fallinn í viðkomandi prófi eða verkefni. Upplýsingar um málið eru skráðar í athugasemdakerfi INNU. Ítrekuð brot geta leitt til brottvísunar úr skóla. Það ferli sem fer í gang þegar um slíkt er að ræða felst í því að formleg tilkynning um málið er send til viðkomandi nemanda og einnig til forráðamanna ólögráða nemenda. Námsráðgjafi kallar nemandann í viðtal. Framhald máls ræðst af úrvinnslu þess viðtals og námshegðun nemandans.