STÆR1DL03 - Stærðfræði með áherslu á tímahugtök

Peningar, tímahugtök, verðgildi

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á tímahugtök og unnið verður með þau á fjölbreyttan hátt, s.s. í gegnum verkefnavinnu, veraldarvefinn og verklegar æfingar, t.d. að fara í strætó. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.

Þekkingarviðmið

  • Algengum tímahugtökum
  • Vikudögum
  • Mánuðum
  • Dagsetningum

Leikniviðmið

  • Lesa í og/eða nýta sér dagatal
  • Lesa á klukku
  • Breyta dagsetningu úr rituðu máli yfir í tölustafi

Hæfnisviðmið

  • Nýta sér tímahugtök í daglegu lífi
  • Átta sig á árstíðum og þeim mánuðum sem tilheyra hverri árstíð
  • Nýta sér viðeigandi stuðningstæki þegar það á við, s.s. dagatal
  • Vera stundvís
Nánari upplýsingar á námskrá.is