Rafvirkjanám í dreifnámi — Námshópur haustið 2026

Fyrirkomulag námsins:  
Námið verður skipulagt sem dreifnám í samstarfi við Rafmennt. Gert er ráð fyrir blöndu af bóklegu námi, verkefnavinnu, verklegum lotum og starfsþjálfun á vinnustað undir handleiðslu meistara. Áætluð tímalína námsins má sjá hér fyrir neðan. Nánara skipulag kennslu og lota verður kynnt þegar þátttaka liggur fyrir.
Nemendur þurfa að komast á námssamning hjá löggiltum meistara. Þar vinna þeir við fagið samhliða náminu og safna verklegri reynslu. Meistari og nemi staðfesta framvindu og hæfni í rafrænni ferilbók. 

Hverjir geta sótt um? 
Aðeins þeir sem hafa lokið grunndeild rafiðna eða D-stigi/4.stigi í vélstjórn geta sótt um.
Umsækjendur þurfa að geta framvísað staðfestingu á fyrra námi.

Áætluð tímalína:
Þar sem umsækjendur þessa námshóps þurfa að hafa lokið nauðsynlegum grunnáföngum í rafiðn er gert ráð fyrir að hægt sé að ljúka sérgreinum rafvirkjunar á þremur önnum í dreifnámi.

  • Haustönn 2026: nám hefst ef næg þátttaka fæst
  • Vorönn 2027: nám heldur áfram samhliða starfsþjálfun
  • Haustönn 2027: lok náms
  • Desember 2027: áætluð námslok
  • Að lokinni útskrift og fullgerðri ferilbók: réttur til að þreyta sveinspróf


Námsáætlun eftir fyrri námsbrautum: 

Rafvirkjun eftir grunndeild rafiðna

 
Haust 2026 Einingar Vor 2027 Einingar Haust 2027 Einingar
HÚST2IT04A 4 HÚST3LR04B 4 IÐTÖ4ST04 4
RLTK3HT05 5 LÝSI3LL02 2 RAFL3RT05D 5
REST3SR04 4 RAFV3RS04 4 RAFM3HF05E 5
STÝR3HV04D 4 STJÓ2TN04 4 LOKA3RA08 8
Einingar alls: 53        

Starfsþjálfun: 80 einingar, nemendur stunda starfsþjálfun á vinnustað og ber iðnmeistari ábyrgð á að nemandinn öðlist viðeigandi þjálfun og færni. Eftirfylgni og eftirlit er framkvæmt með rafrænni ferilbók.

Rafeindavirkjar

       
Haust 2026 Einingar Vor 2027 Einingar Haust 2027 Einingar
HÚST2IT04A 4 HÚST3LR04B 4 IÐTÖ4ST04 4
RLTK3HT05 5 LÝSI3LL02 2 RAFL3RT05D 5
REST3SR04 4 RAFV3RS04 4 RAFM3HF05E 5
STÝR3HV04D 4 STJÓ2TN04 4 LOKA3RA08 8
Einingar alls: 53        

Starfsþjálfun: nemendur stunda starfsþjálfun á vinnustað og ber iðnmeistari ábyrgð á að nemandinn öðlist viðeigandi þjálfun og færni. Eftirfylgni og eftirlit er framkvæmt með rafrænni ferilbók.

Vélfræðingar

       
Haust 2026 Einingar Vor 2027 Einingar Haust 2027 Einingar
HÚST2IT04A 4 HÚST3LR04B 4 RAFL3RT05D 5
RLTK3HT05 5 LÝSI3LL02 2 RAFM3HF05E 5
REST3SR04 4 RAFL2RT04B 4 LOKA3RA08 8
Einingar alls: 41        

Starfsþjálfun: nemendur stunda starfsþjálfun á vinnustað og ber iðnmeistari ábyrgð á að nemandinn öðlist viðeigandi þjálfun og færni. Eftirfylgni og eftirlit er framkvæmt með rafrænni ferilbók.

Ferilbók: Rafræn ferilbók er rafræn skráning um framvindu náms og námsferil nemanda á vinnustað þar sem hæfni nemanda er staðfest af umsjónarmönnum skóla og tilsjónarmanni vinnustaðar Í rafrænni ferilbók eru hæfniþættir skilgreindir sem verkflokkar og verkþættir. Nemi sækir um hérna til að stofna rafræna ferilbók. Þá er stofnaður samningum um vinnustaðarnám á milli skólans, nemandans og fyrirtækisins. Fyrirtækið verður að vera skráð í Birtingarskrá svo mögulegt sé að tengja nemandann og fyrirtækið saman í gegnum rafræna ferilbók.

Kostnaður, gögn og búnaður
Upplýsingar um kostnað, námsgögn og mögulegar staðlotur verða birtar þegar endanlegt skipulag liggur fyrir.

Hvar sæki ég um? 
Umsóknarfrestur er runninn út.