Farsældarþjónusta

Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna voru samþykkt af Alþingi 22. júní 2021. Í lögunum kemur fram að nemendur undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra geti óskað eftir stuðningi tengiliðs sem veitir upplýsingar og leiðbeiningar um sérhæfða þjónustu innan og utan skólans. Til að óska eftir þjónustu þurfa forsjáraðilar hafa samband við tengilið skólans og aðstoðar þá við umsókn um þjónustuna. Tilgangurinn er að auka samstarf þjónustuaðila í þágu farsældar barna og tryggja að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að þjónustu við hæfi.

 

Nánari upplýsingar má finna inn á vef Vestmannaeyjabæjar https://www.vestmannaeyjar.is/thjonusta/born-og-menntun/samthaetting-thjonustu-i-thagu-farsaeldar-barna/samthaetting-thjonustu-i-thagu-farsaeldar-barna

 

Tengiliður vegna farsældarþjónustu:

Ingibjörg Jónsdóttir ráðgjafi (ingibjorg@fiv.is)