STÝR3HV04D - Hönnun, virkni og iðntölvur
Lýsing
Einingar: 4
Þrep: 3
Undanfari: STÝR2SK04B / STÝT2CR04
Áhersla er lögð á kraft- og stýrirásir í lágspennu og flóknari rofabúnað. Nemandi lærir um mótorstýringar og tíðnibreyta. Einnig er áhersla lögð á tengingu flóknari rása eftir teikningum sem og bilanagreiningu á þeim. Að lokum fer nemandi að hanna eigin kraft- og stýrirás.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
- mikilvægi umhverfismála með vali, flokkun og nýtingu á efni.
- segulrofum, stýriliðum, segullokum og flóknari rofabúnaði.
- stafrænum skynjurum s.s. nándar-, hita- og þrýsti skynjurum.
- teiknitáknum.
- neyðarstoppsliðum.
- kraft- og stýrirásum í lágspennu.
- mótorstýringum með mjúkræsi og tíðnibreyti .
- flóknari teikningum stýrirása.
- flóknari mælingum.
- hönnun segulliðastýringa.
- mismunandi spennu í stýrirás.
- mikilvægi þess að réttur búnaður sér valinn í hönnun.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- lesa flóknari teikningar.
- velja réttan búnað í samræmi við teikningar, orkuþörf og umhverfisaðstæður.
- framkvæma flóknari mælingar.
- hanna kraft- og stýrirásir með númerkerfi eftir virknilýsingu.
- skilja virkni og samspil mismunandi rafkerfa.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagný þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
- nota mismunandi aðferðir l ræsinga á orkufrekum rafbúnaði.
- þekkja þann búnað sem notaður er við gerð stýrirása.
- velja réttan búnað miðað við orkuþörf og umhverfisaðstæður.
- tengja flóknari stýrirásir eftir teikningum.
- greina flóknari bilanir í stýrirásum.
- hanna kraft- og stýrirás eftir virknilýsingu.
- greina og velja réttan búnað í hönnun á segulliðastýringu.
Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.