REST3SR04 - Reglugerðir, staðlar og öryggismál
Lýsing
Einingar: 4
Þrep: 3
Undanfari: RAFL2CR03/RAFL2VR04C
Áhersla er lögð á að nemandi kynnist gildandi stöðlum og reglugerðum og vi hvernig ákvæðum reglugerða er framfylgt. Nemandi þekki helstu tengimáta kerfa, álagsvarnir, lekastraumsvarnir og frágang jarðbindinga. Áhersla er lögð á mikilvægi öryggis í vinnuumhverfi og viðbrögðum við slysum.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
- slysahættu í vinnuumhverfi rafiðnaraðmanna og helstu öryggisráðstöfunum gegn henni.
- raforkukerfi og rafbúnaði í íslenskum skipum.
- almennum kröfum í byggingarreglugerð l raflagna og rafbúnaðar í mannvikjum.
- magni, gerð og staðsetningu á rafbúnaði til raflagna fyrir íbúðarhúsnæði.
- tengingum neysluveitna við lágspennudreifikerfi rafveitna.
- fyrirkomulagi og frágangi á mælitækjum við raforkunotkun.
- grunnreglum um raflagnir bygginga, reglugerð um öryggismál og skilgreiningu íðorða um öryggi.
- mismunandi gerðum dreifikerfa og almennum eiginleikum raflagna í byggingum.
- kröfum l sérstakra lagna eða staða.
- sérákvæðum vegna staðsetningar virkja.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- leita sér upplýsinga í gildandi staðli.
- nýta gildandi staðla l að velja búnað fyrir neysluveitur.
- bregðast við rafmagnsslysum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagný þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja efni og búnað samkvæmt kröfum í gildandi staðli og reglugerðum.
- velja réttan öryggisbúnað og hlífðarfatnað.
- bregðast við slysum á réttan há .
- ráðleggja um efni og búnað skv. staðli.
-
Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.