RLTK3HT05 - Raflagnateikning - Hönnun raflagna, magntaka og teikning

Lýsing

Einingar: 5

Þrep: 3

Undanfari: RAFL2VC03/RAFL2VR04C

Áhersla er lögð á að nemandi öðlist vald á teikningalestri, að teikna sniðmyndir, afstöðumyndir og grunnmyndir. Áhersla er lögð á val á búnaði og efni, magntöku og beitingu tölvuforrita.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
  • gildandi stöðlum um raflagnateikningar fyrir raforkuvirki.
  • teiknireglum og staðalákvæðum með tilliti til mismunandi umhverfisþátta.
  • heitum, hugtökum og teiknitáknum raflagnateikninga.
  • magntöku raflagna eftir raflagnateikningum.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • lesa úr raflagnateikningum.
  • teikna neysluveitur og aðaltöflu.
  • beita tölvuforriti við gerð raflagnateikninga.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagný þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja og ákvarða efni fyrir raflagnir fyrir neysluveitu samkvæmt raflagnateikningu.
  • teikna raflagnir í tölvu.
  • teikna sniðmynd, afstöðumynd og grunnmynd út frá forskrift .

 

Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.