STAR1SA05 - Starfsnám á vinnustað

Starfsnám á vinnustað 1

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Starfsnám gefur nemendum tækifæri til þess að kynna sér ýmis störf og mismunandi vinnustaði. Námið felur í sér að nemendur þjálfist í að beita mismunandi aðferðum og verklagi. Starfsnám fer fram í skóla og á vinnustað. Með því að tengja námið við vinnustaði öðlast nemendur oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður skýrari.

Þekkingarviðmið

  • Fjölbreyttum vinnustöðum
  • Fjölbreyttum starfsheitum
  • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum

Leikniviðmið

  • Velja sér vinnustað út frá raunhæfum markmiðum
  • Mæta til vinnu á réttum tíma
  • Fylgja fyrirmælum
  • Fylgja hreinlætisreglum á vinnustað
  • Fylgja samskiptareglum á vinnustað
  • Fylgja öryggisreglum á vinnustað

Hæfnisviðmið

  • Taka þátt í atvinnulífinu
  • Hafa yfirsýn yfir mismunandi störf og starfsvettvang
  • Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem felst í þeim
  • Tilheyra starfsmannahópi
Nánari upplýsingar á námskrá.is