STAR1SH05 - Starfsnám með áherslu á starfsheiti

Starfsheiti

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á að efla þekkingu nemenda á mismunandi starfsheitum. Einnig verða kynntar ýmsar atvinnugreinar og nemendum gefið tækifæri til að máta sig við þær, miðla eigin reynslu og verða upplýst um mismunandi starfsheiti.

Þekkingarviðmið

  • Fjölbreyttum starfsheitum
  • Fjölbreyttum vinnustöðum
  • Mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn að skóla loknum

Leikniviðmið

  • Tengja viðgeigandi starfsheiti við vinnustaði
  • Taka þátt í umræðum um ákveðin starfsheiti
  • Sækja sér upplýsingar um ný og framandi starfsheiti

Hæfnisviðmið

  • Þekkja mismunandi starfsheiti og átta sig á hlutverkum sem í þeim felst
  • Átta sig á mismunandi kröfum og/eða menntun sem liggja að baki ýmissa starfsheita
Nánari upplýsingar á námskrá.is