ENSK1SF04 - Enska með áherslu á sagnfræði

Sagnfræði

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið verður með ensku á fjölbreyttan hátt eftir stöðu hvers og eins. Nemendur munu vinna verkefni og lesa texta sem tengjast nokkrum merkum atburðum í mannkynssögunni. Notað verður aldursmiðað efni við hæfi hvers og eins sem gefur innsýn í mannkynssöguna. Áhersla er á að námið verði áhugahvetjandi og að nemendur geti í leiðinni fræðst um og rifjað upp merka atburði í mannskynssögunni.

Þekkingarviðmið

  • Hugtakinu mannkynssaga
  • Að sagan hefur áhrif á okkur öll
  • Ólíkum æviskeiðum manna
  • Mikilvægi tjáningar og hlustunar

Leikniviðmið

  • Að reynsla forfeðra okkar getur nýst okkur í nútímanum
  • Átta sig á fjölbreytileika samfélagsins og mismunandi menningarheimum
  • Að hægt er að nálgast viðfangsefni á fjölbreyttan hátt
  • Tjá sig í mæltu og/eða rituðu máli
  • Taka þátt í umræðum

Hæfnisviðmið

  • Átta sig á mikilvægi þess að kunna skil á helstu þáttum mannkynssögunnar
  • Virða reynslumeira og eldra fólk
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Taka þátt í umræðum um sögulega atburði
Nánari upplýsingar á námskrá.is