UPPT1NÖ05 - Upplýsingatækni með áherslu á netöryggi

Netöryggi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Í áfanganum fá nemendur kynningu á notkunarmöguleikum tölvunnar og fræðast um örugga netnotkun og óskrifaðar og skrifaðar reglur á samskiptavefjum og bloggsvæðum.

Þekkingarviðmið

  • Að tölvur eru stór hluti af lífi okkar
  • Mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum við tölvunotkun
  • Mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti
  • Því að það er ekki allt satt og rétt sem sett er á veraldarvefinn

Leikniviðmið

  • Að greina á milli þess hversu áreiðanlegar upplýsingar eru á netinu
  • Að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
  • Vinna með texta sem hann hefur lesið og/eða hlustað á
  • Nota samskiptavefi á borð við facebook á sem öruggastan hátt

Hæfnisviðmið

  • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og SAFT og öðrum síðum sem kenna örugga netnotkun
  • Auka sjálfstraust sitt og trú á eigin tölvulæsi
  • Hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • Þekkja muninn á því sem er raunverulegt og óraunverulegt
  • Lesa í leik-og samskiptareglur
Nánari upplýsingar á námskrá.is