UPPT1TS04 - Upplýsingatækni með áherslu á tölvupóstsamskipti

Tölvupóstsamskipti

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Áhersla verður á að búa til tölvunetfang og að senda tölvupóst. Farið verður í ritun á ýmsum tegundum af tölvupósti og muninum á formlegum og óformlegum texta í tölvupóstsamskiptum. Skoðaðar verða ýmsar samskiptareglur tengdar tölvupóstsamskiptum t.d. hvað hástafir í texta geta þýtt og greinarmerki. Einnig er komið inn á hvernig tölvupósti við ættum ekki að svara og rætt um allskyns hættur sem mikilvægt er að varast.

Þekkingarviðmið

  • Að tölvur eru stór hluti af lífi okkar
  • Mikilvægi þess að fylgja ákveðnum umgengisreglum
  • Mikilvægi þess að vanda tölvusamskipti eins og önnur samskipti, því að það er ekki allt satt og rétt sem sett er á veraldarvefinn

Leikniviðmið

  • Að nýta sér netið á öruggan og ánægjulegan hátt
  • Útbúa og nota sitt eigið netfang
  • Tjá sig í rituðu máli
  • Nýta sér leiðréttingarforrit þegar ritaður er tölvupóstur

Hæfnisviðmið

  • Að nýta sér tölvupóst sem einn af mörgum samskiptamátum
  • Lesa í og/eða nýta sér upplýsingar sem koma fram á síðum eins og SAFT og öðrum síðum sem kenna örugga netnotkun
  • Lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
Nánari upplýsingar á námskrá.is