HBFR1SS02 - Heilbrigðisfræði með áherslu á sjálfsmynd og samskipti

Sjálfsmynd og samskipti

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Forkröfur: Engar
Ný menntastefna er höfð til grundvallar og grunnþættir menntunar eru hafðir að leiðarljósi. Unnið er markvisst að því að nemendinn öðlist leikni við eflingu sjálfsmyndar og sjálfsvitundar. Unnið verður með samskipti, eigin hegðun og framkomu og hversu mikiðvægt það er að geta átt ábyrg og farsæl samskipti við aðra.

Þekkingarviðmið

  • Mikilvægi réttrar sjálfsmyndar og sjálfsvitundar
  • Mikilvægi þess að vera sáttur við sjálfan sig
  • Mismunandi leiðum í samskiptum og samstarfi
  • Mikilvægi hollra lífshátta og hreyfingar fyrir sjálfsmyndina

Leikniviðmið

  • Þekkja sjálfan sig
  • Styrkja sjálfsmynd sína
  • Eiga góð samskipti við mismunandi einstaklinga í mismunandi aðstæðum
  • Fara eftir ráðleggingum í hollum lífsháttum, fæðuvali og hreyfingu

Hæfnisviðmið

  • Gera sér grein fyrir eigin sjálfsmynd og vera sáttur við hana
  • Gera sér grein fyrir eigin líðan, einkennum vanlíðunar og geta leitað sér hjálpar
  • Vera umburðarlyndur gagnvart mismunandi einstaklingum
  • Lifa hollu og heilsusamlegu lífi með tilliti til mataræðis og hreyfingar
Nánari upplýsingar á námskrá.is