SPÆN1LT03 - Spænska 3

hlustun og ritun, lesskilningur og tal, menning og staðhættir spænskumælandi landa

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: 10 einingar í spænsku á 1. þrepi.
Byggt er á þeirri undirstöðu sem nemandinn hefur aflað sér í undanförum. Unnið er að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun. Textar verða smám saman lengri og þyngri. Orðaforði er aukinn, nemendur þjálfast í nýjum málfræðiatriðum og að mestu er lokið við að fara yfir grundvallarþætti spænska málkerfisins. Frásagnir í nútíð og þátíð eru æfðar munnlega og skriflega. Samhliða annari vinnu lesa nemendur einfalda skáldsögu og leysa ýmis verkefni út frá henni. Einnig er myndefni fléttað inn í kennsluna eftir föngum. Sérstök áhersla er lögð á menningu og staðhætti spænskumælandi landa þar sem nemendur velja sér m.a. ákveðin umfjöllunarefni og kynna fyrir samnemendum. Hvatt er til aukins sjálfstæðis nemenda í vinnubrögðum og að þeir nýti sér ýmis hjálpargögn, s.s. orðabækur, málfræðibækur og netið við upplýsingaöflun.

Þekkingarviðmið

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum þrepsins
  • grundvallarþáttum spænska málkerfisins
  • spænskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, helstu samskiptavenjur og siði þjóðanna
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli, þ.m.t. formgerð og byggingu texta og vera meðvitaðri en áður um muninn á þessum málsniðum

Leikniviðmið

  • fylgja frásögn og samtölum sem tengjast efni áfangans þegar talað er skýrt og geta borið fram spurningar
  • skilja texta um almennt og sérhæfðara efni sem fjallað er um í áfanganum og beita viðeigandi aðferðum eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum hverju sinni
  • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatextum
  • taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og beita kurteisisvenjum, málvenjum og hljómfalli við hæfi
  • segja frá á skýran hátt í nútíð og þátíð og halda stutta kynningu á undirbúnu efni með því að beita orðaforða, setningagerð og framburði á sem réttastan hátt
  • skrifa samfellda texta um ýmis efni sem hann þekkir, t.d. mannlýsingar og lýsingar á stöðum og umhverfi
  • nýta sér ýmis hjálpargögn í spænskunáminu

Hæfnisviðmið

  • fylgjast með frásögnum og ná aðalatriðum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
  • afla sér ýmissa upplýsinga úr mæltu máli, greina helstu atriði þeirra og hagnýta sér í námi og starfi
  • tileinka sér aðalatriðin í stuttum og/eða einföldum rauntextum af ýmsu tagi og geta dregið ályktanir af því sem hann les
  • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá skoðun sína
  • geta bjargað sér í málinu við flestar algengar aðstæður
  • segja frá eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
  • miðla á einfaldan hátt efni sem hann hefur aflað sér þekkingar á í ræðu og riti
  • skrifa um hugðarefni sín, ýmis málefni og atburði, ímyndaða eða raunverulega, í þátíð og nútíð
Nánari upplýsingar á námskrá.is