Föll og ferlar
Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: Grunnskólapróf.
Farið verður yfir: Breytur, föll og ferla. Línur, fleygboga, lograföll og vísisföll. Rúmfræði og hornafræði. Hornaföll. Notkun forrita og töflureiknis við lausn stærðfræðilegra verkefna.
Þekkingarviðmið
- undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings og 1. og 2. stigs jöfnum
- grunnatriðum töflureiknis og stærðfræðiforrits
- beinum línum, fleygbogum og skurðpunktum grafa
- fallhugtakinu, formengi falls og bakmengi
- margliðum; þáttun, núllstöðvum
- hornaföllum
- rúmfræði og hornafræði
Leikniviðmið
- lýsa sambandi tveggja breyta á myndrænan hátt
- nota forrit til að leysa ýmis reikningsleg viðfangsefni
- leysa 1. og 2. stigs jöfnur
- lýsa raunverulegum fyrirbrigðum með notkun falla
- leysa rúmfræðileg viðfangsefni
- meðhöndla hornaföll
Hæfnisviðmið
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega með viðeigandi hætti
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu viðfangsefna um föll og ferla
- geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi um föll og ferla í mæltu máli og texta
- beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
- skilja merkingu og tengsl hugtaka sem notuð eru í útreikningum um föll og ferla
Nánari upplýsingar á námskrá.is