EFNA3CL05 - Efnafræði - lífræna efnafræði

Lýsing

Lífræn efnafræði

Áfanginn fjallar um lífræn efni, flokkun þeirra og nöfn skv. IUPAC-nafnakerfinu. Lögð er áhersla á efnafræði kolefnis og kolefnissambanda, gerð og eðli tengja í lífrænum efnum og áhrif þrívíddarbyggingar sameinda á eðli og eiginleika lífrænna efna. Lýst er helstu tegundum efnahvarfa og hagnýtingu þeirra við efnasmíðar, þ.e. hvernig einu lífrænu efni er breytt í annað. Lögð er áhersla á ábyrga umgengni við efni og áhöld í tilraunastofu, undirbúning og framkvæmd tilrauna, úrvinnslu þeirra og framsetningu niðurstaðna. Lagt er upp úr samvinnu nemenda, en einnig sjálfstæði þeirra og ábyrgð á eigin námsframvindu.

Einingafjöldi : 5

Þrep : 3

Forkröfur: EFNA2ES05

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Flokkun lífrænna efna á grundvelli virkra einkennishópa.
  • Undirstöðureglum IUPAC-nafnakerfisins og hvernig því er beitt.
  • Mismunandi svigrúmablöndun kolefnis og tengsl svigrúmablöndunar við þrívíddarlögun lífrænna sameinda.
  • Eðli, eiginleikum og hvarfgirni tengja í lífrænum efnum.
  • Helstu tegundum efnahvarfa meðal lífrænna efna og hvarfgangi þeirra.
  • Undirstöðuatriðum lífrænna efnasmíða.
  • Reglum um umgengni við efni og áhöld í tilraunastofu.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Flokka og nafngreina lífræn efni.
  • Greina þrívíddarlögun lífrænna sameinda og áhrif hennar á eðli og eiginleika efnanna.
  • Greina skautun tengja og myndun óstöðugra milliefna í þrepahvörfum.
  • Framkvæma tilraunir skv. verklýsingu, vinna úr niðurstöðum og skrifa formlegar og nokkuð ítarlegar skýrslur.
  • Nota töflureikni við úrvinnslu gagna, töflur og línurit.
  • Beita undirstöðuþekkingu sinni til að lýsa því hvernig hægt er að breyta einu lífrænu efni í annað.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og geta beitt þeim í umræðum og skriflegum verkefnum.
  • Setja úrlausnir sínar skýrt og skipulega fram og beita táknmáli lífrænu efnafræðinnar rétt.
  • Sækja sér gagnlegar upplýsingar og ítarefni af netinu eða í aðrar uppsprettur.
  • Tengja námsefni áfangans við umhverfi sitt og daglegt líf þar sem lífræn efni gegna stóru hlutverki.
  • Gera sér grein fyrir og skilja mikilvægi lífrænna efnasmíða fyrir framþróun á sviði nútíma tækni á fjölmörgum sviðum , t.d. í lyfjaiðnaði, læknisfræði, lífefnafræði o.fl.
  • Sýna frumkvæði og sjálfstæði við undirbúning og framkvæmd tilrauna.
  • Umgangast efni og áhöld með virðingu og af ábyrgð með hliðsjón af eigin öryggi og annarra.
  • Takast á við háskólanám í greininni.

 

Námsmat: Námsmat áfangans byggir á verkefnum og tilraunum. Áfanga lýkur með lokaprófi.