LIFO2MA04 - Almenn litafræði - áhrif lita
Lýsing
Einingafjöldi : 4
Þrep: 2
Undanfari: Enginn
Hinir almennu þættir litafræðinar teknir fyrir. Litir og umhverfið. Hvað eru litir? Nemendum er kynnt mikilvægi þekkingar á litum og samspili lita og umhverfis almennt er stýra nánast okkar daglega lífi. Farið er yfir huglæga þætti litanna, sálræn áhrif þeirra og eiginleika og jafnframt efnisfræðilegan þátt lita og nálgun þeirra í umhverfi okkar.Hvernig sjáum við liti? Eðlis-og líffræðilegir þættir skýrðir – Ljós og litir. Eiginleikar lita. Lögun lita í plastmálningu eftir gefnum sýnishornum tvisvar á önn. Kynnt áhrif lita á mismunandi rými.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hugtakinu litur, og þáttum þeirra í umhverfi okkar.
- eiginleikum lita og áhrifum, vægi þeirra og þyngd.
- hvernig við notum liti almennt í nánasta umhverfi okkar til boða, banna og leiðbeininga.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- framkvæma og leggja fram litatillögur á einfaldan og aðgenglegan hátt út frá gefnum forsendum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- kunna skil á eiginleikum og áhrifum lita.
- þekkja til þeirra efnafræðilegu þátta er snýr að litum og þá einkum málningarefna.
Námsmat: Símat og verkefnaskil