LIFO3MA04 - Litakerfi - lita- og formfræði

Lýsing

Einingafjöldi : 4

Þrep: 3

Undanfari: LIFO2MA04

Í áfanganum er kynnt áframhaldandi samspil forma og lita þó með meiri áherslu á litafræði sem sérstakan áfanga fyrir nemendur í málaraiðn. Kynning á frumgerðum efnisfræðilegrar uppbyggingar litakerfa og þeim mönnum sem að þeim stóðu allt fram á okkar daga. NCS-litakerfið er kynnt og hvernig staðið er að uppbyggingu þess og notkun sem hjálpartækis í samskiptum einstaklinga. Fjallað er um hversu nauðsynlegt er að arkitektar, ráðgjafar og málarar sem koma að sameiginlegum verkefnum þekki NCS-litakerfið, uppbyggingu og staðsetningu lita innan þess kerfis. Lögð er áhersla á litaskilning og litaþekkingu auk úrvinnslu á ýmsum þáttum NCS-litakerfis. Nemendur eru látnir leysa af hendi verkefni þessu tengd ásamt því að laga liti eftir gefnum sýnishornum með aðstoð NCS-litakerfis.

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • uppbyggingu NCS-litakerfis og staðsetningu á litum innan þess. Hvernig litum er raðað í litahring og litasnið er síðan myndar eina heild, litalíkan.
  • númerakerfi skv.staðsetningu lita í NCS-litakerfi.
  • tilgangi litakerfa og sé meðvitaður um þá viðtæku hagræðingu er þeim fylgir.

Leikniviðmið

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • framkvæma og leggja fram litatillögur á einfaldan og aðgenglegan hátt út frá gefnum forsendum.
  • vera ráðgefandi í litavali.

Hæfniviðmið

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • kunna skil á eiginleikum og áhrifum lita.
  • þekkja til þeirra efnafræðilegu þátta er snýr að litum og þá einkum málningarefna.
  • þekkja til hvernig við notum liti almennt í nánasta umhverfi okkar til boða, banna og leiðbeininga.

 

Námsmat: Símat með hliðsjón af verkefnum