Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- lögum og reglum um umhverfismál og vinnuvernd,
- lögum um mannvirki,
- innkaupareglum opinberra aðila,
- lögum um byggingavörur.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- skilgreina stjórnunar- og verkferla,
- skilgreina verklagsreglur og vinnuleiðbeiningar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- rækja skyldur og uppfylla kröfur sem settar eru á iðnmeistara í lögum um mannvirki.
Námsmat
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá.
Fyrirmynd: MLÖR4MS02(BA)