MEIS4MÆ03 - Mælitækni og mælitæki
Lýsing
Fjallað er um uppbyggingu hallamælis, sjónhornamælis, (þeódólíts, theodolits) og rafeinda- og leysigeislastýrðra mælitækja og notkunarmöguleikar þessara tækja sýndir. Farið er í hnita- og kótaútreikninga og úttekt á mæliblöðum. Hæðarmæling og prófun tækja, leiðrétting, skráning gagna og hæðarkótareikningur. Kynning á ýmsum mælitækjum og mæliaðferðum. Verklegar mælingar.
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi réttra stillinga á þeim búnaði sem notaður er við landmælingar.
- helstu mælitækjum sem notuð eru í byggingariðnaði.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- notkun mælitækja við staðsetningu mannvirkja.
- skráningu gagna.
- hæðarmælingum og prófun tækja.
- hnita- og kótaútreikningum og úttektum á mæliblöðum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- gera landmælingar og mæla út staðsetningu bygginga.
- beita helstu mælitækjum sem notuð eru í byggingariðnaði.
- skrá gögn og reikna út hnit.
Námsmat
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn. Námsmatið er í höndum kennara viðkomandi áfanga en þarf að fylgja þeim reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá
Fyrirmynd: MMÆL4MS03(BA)