Lýsing
Einingar: 1–3
Þrep: 2
Áfanginn er ætlaður nemendum sem vilja taka þátt í félagslífi Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum með því að koma að undirbúningi, skipulagi og framkvæmd viðburða á vegum Nemendafélags FÍV, NFFÍV, án þess að sitja í stjórn nemendafélagsins. Nemendur starfa í samstarfi við stjórn NFFÍV og eftir atvikum starfsfólk skólans. Þeir geta tekið þátt í einum stærri viðburði eða fleiri minni verkefnum, eftir áhuga, tíma og umfangi verkefna hverju sinni. Áhersla er lögð á virkni, ábyrgð, frumkvæði, samvinnu og jákvæð samskipti. Fjöldi eininga fer eftir vinnuframlagi nemanda. Miðað er við að ein eining samsvari um það bil 20 klukkustundum í fundum, undirbúningi, framkvæmd og eftirvinnslu verkefna.
Hæfni:
Nemandi skal geta:
- tekið virkan og ábyrgan þátt í félagsstarfi skólans,
- unnið með öðrum að skipulagi og framkvæmd viðburða,
- komið hugmyndum sínum á framfæri og tekið þátt í umræðum,
- sýnt frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð í verkefnavinnu,
- átt jákvæð og uppbyggileg samskipti við samnemendur, stjórn NFFÍV og starfsfólk FÍV,
- gert grein fyrir eigin vinnuframlagi og metið lærdóm sinn af verkefninu.
Námsmat:
Áfanginn er metinn með staðið/fallið og fjöldi eininga, 1–3, ræðst af umfangi vinnuframlags nemanda. Við mat á einingafjölda er miðað við skilgreiningu aðalnámskrár framhaldsskóla á framhaldsskólaeiningu, þar sem ein framhaldsskólaeining samsvarar 18–24 klukkustunda vinnu.
Nemendur skila vinnuskýrslu þar sem fram kemur hvaða verkefnum þeir tóku þátt í, hvert hlutverk þeirra var, áætlaður fjöldi vinnustunda og stutt mat á eigin framlagi. Stjórnendur áfangans meta vinnuframlag nemanda út frá vinnuskýrslu, virkni, mætingu, ábyrgð og samráði við stjórn NFFÍV eftir því sem við á.