RAFL2RT04B - Raflagnir, reglugerðir og raflagnateikning 2
Lýsing
Viðfangsefni: Öryggismál, reglugerðir, raflagnateikning, raflagnir, greinatöflur
Lýsing: Nemandi kynnist gildandi stöðlum og reglugerðum og viti hvernig ákvæðum reglugerða er framfylgt. Nemandi tileinki sér lestur og teikningu raflagnateikninga. Farið verður í varnarbúnað í greinatöflu, uppbyggingu þeirra og virkni, lagnir íbúðarhúsa og frágang á töflubúnaði. Nemandi lærir að velja leiðara og búnað við hæfi.
Forkröfur: RAFL1RÖ04A
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
- mikilvægi umhverfismála með vali, flokkun og nýtingu á efni.
- hættum og varnaraðgerðum við vinnu í töflubúnaði.
- gildandi öryggis- og reglugerðaákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir.
- áhrifum utanaðkomandi aðstæðna á raflagnir og rafbúnað, t.d. raki og varmi.
- raflagnabúnaði fyrir neysluveitur.
- raflagnateikningu í neysluveitu.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum.
- setja upp og tengja rafbúnað í ýmsum tengidósum og með mismunandi leiðurum.
- setja upp og víra greinatöflur eftir teikningu.
- leggja einfalda lágspennulögn frá töflu og tengja rafbúnað.
- ganga frá jarðtengingum og spennujöfnun.
- lesa og teikna einfaldar töfluteikningar og tengja eftir þeim.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
- teikna einfaldar töfluteikningar og tengja eftir þeim.
- leita sér upplýsinga í gildandi staðli.
- velja búnað fyrir neysluveitur.
- ganga faglega frá greinatöflu.
- framkvæma mælingar og gera skýrslu
Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.