SKAP2TT05 - Tíska, hönnun og tíðarandi

Lýsing

Í áfanganum er kafað ofan í heim tískunnar frá mörgum hliðum. Lögð er áhersla á að nemendur skilji samhengi tísku og menningar, allt frá hátískuviðburðum eins og Met Gala og tískuvikum yfir í strauma í götutísku (streetwear). Nemendur læra að greina hvernig samfélagslegir atburðir og dægurmenning móta klæðaburð og sjálfsmynd.    
        Stór hluti áfangans er verklegur þar sem áhersla er lögð á upcycling (endurnýtingu). Nemendur læra að gefa notuðum flíkum nýtt líf með skapandi lausnum, hönnunarferlum og tæknilegri útfærslu. Markmiðið er að efla umhverfisvitund og hvetja til sjálfbærni í textíliðnaði. Nemendur vinna einnig hönnunarmöppu. Þar skrásetja þeir skapandi vegferð sína með skissum, hugmyndavinnu og tilraunum með textíl. Nemendur læra að þróa hugmynd úr kveikju yfir í fullbúna hönnun með því að prófa sig áfram með ólíka tækni og efni.

Forkröfur: LSTR2ME05

Þekkingarviðmið:
Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Menningarlegu samhengi: Hvernig helstu tískuviðburðir (Met Gala, tískuvikur) spegla samfélagsleg málefni hverju sinni.
  • Sjálfbærni: Hugtakinu upcycling og umhverfisáhrifum textíliðnaðarins í stóra samhenginu.
  • Efnisfræði: Eiginleikum ólíkra textílefna og hvernig þau henta til endurvinnslu eða breytinga.
  • Hönnunarferli: Hugtökum og ferlum sem tengjast hugmyndavinnu, frá skissu í fullbúna vöru.
  • Götutísku: Uppruna og þróun helstu strauma í götutísku og áhrifum þeirra á hátísku.

Leikniviðmið
Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:

  • Skrásetja ferli: Beita hönnunarmöppu (process journal) til að safna innblæstri, teikna skissur og halda utan um hugmyndir.
  • Framkvæma tilraunir: Gera skipulegar textílprufur (t.d. prufa saumtækni, litun eða niðurbrot á efni).
  • Beita tækni: Nota helstu verkfæri og vélar í textílvinnustofu á öruggan hátt við endursköpun flíka.
  • Miðla hönnun: Setja fram hönnunarhugmyndir sínar myndrænt (moodboard/skissur) og skriflega.
  • Upcycling: Beita aðferðum endurhönnunar til að breyta útliti og notagildi notaðra flíka.

Hæfniviðmið
Nemandinn skal geta hagnýtt þá þekkingu og leikni sem hann hefur náð til að:

  • Greina tíðaranda: Lesa í strauma og stefnur í samtímanum og nota þá sem virkan innblástur í eigin sköpun.
  • Sýna sjálfstæði: Vinna skipulega að hönnunarverkefni frá upphafi til enda með sjálfstæðum ákvörðunum.
  • Sýna gagnrýna hugsun: Meta eigið vinnuferli og árangur með hliðsjón af sjálfbærni og fagurfræði.
  • Tengja saman fræði og verklega vinnu: Útfæra hönnun sem á sér rætur í menningarlegri greiningu (t.d. að hanna flík sem svar við ákveðnu þema eða samfélagsbreytingu).
  • Bera ábyrgð: Sýna ábyrga afstöðu til neyslu og efnisnotkunar í gegnum hönnun sína.

Námsmat: Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá