STJK2TN04 - Stjórnunarkerfi - stafrænar rásir, talnakerfi, hlið og bolean

Lýsing

Viðfangsefni: Stafrænar rásir, talnakerfi, hlið og boolean

Lýsing: Áhersla er lögð á að nemandi kynnist stafrænni tækni og nái tökum á grundvallaratriðum hennar. Nemandi kynnist talnakerfum sem notuð eru við stafrænar rásir, notkun sannleikstaflna til að skilgreina virkni rökrása og læri rithátt og uppsetningu á bólskum jöfnum.

Forkröfur: RAFM2HL05A

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
  • samhengi mekatrónik og annarra einstakra faga í rafvirkjun og notagildi hennar.
  • notkun rökrásarhliða.
  • notkun bólskrar algebru.
  • notkun sannleikstaflna.
  • virkni helstu samrása.
  • virkni helstu lása og vippna.
  • virkni helstu púlsgjafa.

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • skilgreina einafaldar rökrásir með bólskri algebru.
  • nota karnaugh kort til einföldunar á rökrásum.
  • beita mælitækjum við prófanir á rökrásum.
  • beita hermiforritum til prófunar á rökrásum.

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
  • þekkja tákn helstu grunnhliða og virkni þeirra.
  • skilja virkni einfaldra rökrása.
  • tengja rökrás út frá virknilýsingu.
  • tengja samrás í hermiforriti og prófa hana.

Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.