VÉLS2VA05(BV) - Vélstjórn 2 - Keyrsla og bilanagreining véla

Lýsing

Einingafjöldi : 5

Þrep: 2

Forkröfur: VÉLS1VA05(AV)

Í áfanganum öðlast nemandinn þekkingu á helstu véla- og lagnakerfum um borð í skipum, uppbyggingu þeirra, hlutverki, notkun og viðhaldi. Að auki kynnist nemandinn uppbyggingu skutpípu, skiptiskrúfu og niðurfærslugíra, ásamt helstu dælugerðum. Farið er yfir eldsneytisbúnað dísil- og Ottóvéla og mismunandi tegundir eldsneytis, efnasamsetningu og eiginleika, ásamt rekstri og viðhaldi kælivatns- og sjókælkerfa. Áhersla er lögð á umhirðu búnaðar í vélarúmi, bilanagreiningu og viðgerðir ásamt helstu öryggisatriðum varðandi eldvarnir skipa, flokkun og eftirlit. Farið er yfir öryggismál, umgengni um vélar og verkstæði ásamt hættum sem stafa af vélum og vélbúnaði. 

Þekkingarviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • helstu öryggisatriðum varðandi rekstur og viðhald smærri skipa
  • eldsneytisbúnaði dísil- og Ottóvéla og loftaðfærslubúnaði miðað við algengustu eldsneytistegundir
  • helstu dælugerðum kostum þeirra og annmörkum
  • algengum aðferðum við aflyfirfærslu frá vél að skrúfu
  • hinum ýmsu kerfum í skipum, hlutverki, uppbyggingu og notkun þeirra og viðhaldi
  • algengum gerðum af þrýstivökvakerfum og vökvastýrisvélum
  • uppbyggingu skutpípu og þéttingar hennar við skrúfuás
  • uppbyggingu skiptiskrúfunnar
  • uppbyggingu niðurfærslugíra með og án úttaka og hlutverki þrýstilegu
  • herslum mismunandi bolta eftir efnisgæðum og gerð

Leikniviðmið:

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • nota skjámyndakerfi við stjórnun vélarúms (vélarúmshermir)
  • beita rökhugsun
  • rekja og teikna upp helstu kerfi um borð í smærri skipum (s.s. lensikerfi, neysluvatnskerfi)
  • lesa úr einlínu- og þversniðsmyndum
  • ganga um vélar og verkstæði með tilliti til hreinlætis og öryggis

Hæfniviðmið:

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bilanagreina vélar á skipulagðan hátt
  • annast daglegan rekstur lítils vélarúms
  • sinna fyrirbyggjandi viðhaldi í litlu vélarúmi (s.s. olíu- og síuskipti)
  • útskýra mismunandi gerðir og uppbyggingu tengsla (kúplinga), gíra og skipsskrúfa
  • stunda vinnu á vélaverkstæði m.t.t. umgengni og öryggismála

 

Námsmat: Námsmat er skilgreint í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá og nánar útfært í verklagsreglum skólans sem birtar eru í gæðahandbók.