HÚST3LR04 - Hússtjórnarkerfi 2
Lýsing
Áhersla er lögð á að nemandi kynnist forritanlegum raflagnakerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í uppbyggingu kerfa, búnað og virkni, sem og skipulag við hönnun slíkra kerfa. Nemandi fær þjálfun í forritun kerfa.
Forkröfur: HÚST2IT04A
Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
- mikilvægi umhverfismála með vali, flokkun og nýtingu á efni.
- helstu flokkum forritanlegra raflagna og muninum á þeim.
- þráðlausum kerfum og eiginleikum þeirra.
- skynjurum og móttökurum.
- rofaliðum s.s. kveikjum, dimmum, gardínuliðum.
- forritun hússtjórnarkerfa.
- parameter stillingum.
Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- hanna hússtjórnarkerfi eftir virknilýsingu.
- velja búnað samkvæmt kröfum.
- tengja mismunandi búnað við hússtjórnarkerfi.
Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagný þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
- velja og tengja búnað fyrir kerfi.
- forrita og tengja þráðlausan sendi og móttakara.
- forrita flóknari hússtjórnarkerfi.
Námsmat:
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.