LÝSI3LL02 - Lýsingartækni - Ljósgjafar, lýsingarhönnun og neyðarlýsing
Lýsing
Áhersla er lögð á að nemandi tileinki sér undirstöðuþætti lýsingar í samræmi við gildandi reglugerðir. Einnig er lögð áhersla á geislun, ljós og liti, ljósgjafa, hagnýta
útfærslu og ljósmælingar. Nemandi fær kynningu á neyðarlýsingu og reglugerðum tengdum henni.
Forkröfur: RAFM2RS05B, RAFL2RT04B
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
- mismunandi gerðum ljósgjafa með tilliti til ljósdreifikúrfa og ljósnýtni.
- beinni og óbeinni lýsingu.
- ljóslit (ljóshitastigi) og litarendurgjöf.
- mismunandi ljósdreifingu.
- ljósmælingum.
- reglum, uppsetningu og gerðum neyðarlýsingar.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja viðeigandi búnað sem hentar við mismunandi aðstæður með tilliti til umhverfis, litarendurgjafar og endurkasts.
- framkvæma ljósmælingar.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- framkvæma áhttumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
- útskýra heiti og hugtök er varðar lýsingu.
- skilja niðurstöður ljósmælinga.
Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.