Lýsing
Viðfangsefni: Rafvélar, ræsibúnaður og spennar
Lýsing: Áhersla er lögð á rafvélar þ.e. rafala, mótora og spenna bæði jafnstraums-, einfasa- og þriggjafasa riðstraums.
Forkröfur: RAFM3RR05D og STÝR3HV04C
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
- merkiskiltum og upplýsingarriti fyrir rafvélar.
- virkni rafala, mótora og spenna.
- tengimáta mismunandi ræsiaðferða.
- legubúnaði og teiknitáknum rafvéla.
- virkni mjúkræsa og tíðnibreyta.
- tengingum og mælingum á rafvélum.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- tengja ýmis konar rafvélar við mismunandi ræsibúnað og neysluveitur.
- tengja þriggja fasa rafmótora við hraðastýringar og mjúkræsa.
- framkvæma mælingar á rafvélum.
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
- setja upp og keyra rafmótor samkvæmt teikningu.
- gera helstu mælingar í kraft- og stýrirás mótora.
- greina bilanir í rafmótorum og stýringum.
- skipta um algengar legur og kol.
- tengja 3ja fasa rafmótor með tíðnibreyti og mjúkræsi.
Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.