SKSK2MA03 - Strikun og áferð
Lýsing
Í áfanganum kynnast nemendur þeim verkþáttum málaraiðnar sem snúa að skreytimálun. Farið er yfir sögu skreytimálunar og stöðu hennar í nútíma þjóðfélagi með áherslu á ýmsar verkeiningar s.s. málun veggja, lofta, hurða og innréttinga. Unnið er með ýmsar gerðir lasúrefna, reliv‐ og perlumynstur. Hvernig framkvæma má mismunandi útfærslur t.d. með pensli, dumbkústi, vaskaskinni, plastfilmu og afþurrkun með tusku. Nemendur læra hvernig standa skal að gerð burðarefna skapalóns og styrkingu þess, skurði og mismunandi útfærslum. Kennslan er að mestu verkleg þar sem nemendur takast á við skapandi og fjölþætt handverk.
Forkröfur: engar
Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- efnum sem notuð eru við skapalónsgerð og skreytimálun.
- eiginleikum og notkun lasúrmálningar.
- öryggisreglum fyrir viðkomandi málningarefni og áhöld.
- áhöldum og verkfærum sem notuð eru við skapalónsgerð og skreytimálun.
- skiptingu málningarflatar fyrir skreytimálun.
- grunnaðferðum sem notaðar eru við lasúrmálun.
Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- velja áhöld og búnað til mismunandi skreytimálunar.
- yfirfæra mynstur eftir fyrirmynd.
- draga beinar línur (línustrikun).
Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- velja skurðarverkfæri til skapalónsgerðar.
- hirða um áhöld og verkfæri.
- búa til og nota skapalón fyrir mismunandi skreytimálun.
- teikna og skera út mynstur á skapalón.
- mála mynsturbekki með aðstoð skapalóns.
- skreytimála með mismunandi aðferðum.
- forma með rúllu og dúppa með gúmmídúppi.