VIST1VN01 - Vinnustofur nemenda
Lýsing
Vinnustofur eru stuðningsúrræði fyrir nemendur sem vilja eða þurfa aukinn stuðning við nám og skipulag. Vinnustofa er 1 einingar áfangi sem kenndur er einu sinni til tvisvar í viku.
Í vinnustofum velja nemendur hvaða viðfangsefnum þeir sinna hverju sinni og fá aðstoð kennara við námsefni, skipulag og forgangsröðun verkefna. Stuðningurinn tekur mið af þörfum, námsgetu og þroska hvers og eins.
Markmið vinnustofanna er að efla ábyrgð nemenda á eigin námi, styrkja sjálfstæði þeirra og færni í að skipuleggja og halda utan um nám sitt, jafnframt því að tryggja að þeir geti fengið markvissan námsstuðning þegar þess er þörf.