VIST1VN05 - Vinnustofur - nám og skipulag

Lýsing

Vinnustofur eru stuðningsúrræði fyrir nemendur sem hafa þörf fyrir aukinn stuðning við nám, skipulag og utanumhald náms. Þær geta meðal annars hentað nemendum sem þurfa aðstoð við að skipuleggja vinnu sína, forgangsraða verkefnum, ná betri tökum á námsefni eða byggja upp sjálfstæðari vinnubrögð.

Í vinnustofum velja nemendur hvaða viðfangsefnum þeir sinna hverju sinni og fá leiðsögn kennara við námsefni, skipulag vikunnar og forgangsröðun verkefna. Stuðningurinn tekur mið af þörfum, námsgetu og þroska hvers og eins. Vinnustofa er 5 eininga áfangi og er kennd fjórum sinnum í viku, sem gefur svigrúm til reglulegs stuðnings og eftirfylgni.

Markmið vinnustofanna er að efla ábyrgð nemenda á eigin námi, styrkja sjálfstæði þeirra og auka færni þeirra í að skipuleggja og halda utan um nám sitt. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur fái markvissan námsstuðning þar sem þörfin er mest.