Rafræn ferilbók-vinnustaðanám

Ný reglugerð um vinnustaðanám tók gildi 1. ágúst 2021. Vinnustaðanám er hluti af námi þeirra nem­enda sem hófu nám á haustönn 2021. Frá þeim tíma sér Framhaldsskólinn um gerð og staðfest­ingu vinnustaðanáms­samn­inga og hefur umsjón með sínum nem­endum meðan á vinnustaðnáminu stendur.

Hæfni­kröfur sem nem­andi upp­fyllir ræður tíma­lengd vinnustaðanáms. Til­sjón­armaður á vinnustað metur hæfni nem­anda sam­kvæmt hæfni­kröfum starfsins og hæfniþáttum í raf­rænni fer­ilbók. Umsjónaraðili skóla staðfestir hæfnina í lokin. Vinnu­staða­nám getur þó aldrei orðið lengra en upp­gefin tíma­mörk í náms­brauta­lýs­ingum viðkom­andi greinar. Vinnustaðanámi telst lokið þegar hæfni nem­anda er náð sam­kvæmt fer­ilbók.

Nem­endur sækja sitt vinnustaðnám undir handleiðslu meistara á vinnustað.  Nem­endur sækja um vinnustaðanám hjá meist­urum/​​fyr­ir­tækjum/​​stofn­unum sem mega taka nema. Þannig getur neminn sjálfur haft áhrif á það hvar hann tekur vinnustaðanámið. 

Til að skólinn geti stofnað rafræna ferilbók og nemasamning þarf að fylla út þetta Skráning í ferilbók.

Þegar skólinn hefur stofnað ferilbókina fá neminn og meistarinn sms og/eða tölvupóst þar sem þeir eru beðnir að undirrita samninginn rafrænt.

Nánari upplýsingar um rafræna ferilbók má finna á heimasíðu Menntamálastofnunar.