HÚST3LR04 - Hússtjórnarkerfi 2

Lýsing

Áhersla er lögð á að nemandi kynnist forritanlegum raflagnakerfum, tilgangi þeirra og möguleikum. Farið er í uppbyggingu kerfa, búnað og virkni, sem og skipulag við hönnun slíkra kerfa. Nemandi fær þjálfun í forritun kerfa.

Forkröfur: HÚST2IT04A

Þekkingarviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
  • mikilvægi umhverfismála með vali, flokkun og nýtingu á efni.
  • helstu flokkum forritanlegra raflagna og muninum á þeim.
  • þráðlausum kerfum og eiginleikum þeirra.
  • skynjurum og móttökurum.
  • rofaliðum s.s. kveikjum, dimmum, gardínuliðum.
  • forritun hússtjórnarkerfa.
  • parameter stillingum.

 

Leikniviðmið:
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • hanna hússtjórnarkerfi eftir virknilýsingu.
  • velja búnað samkvæmt kröfum.
  • tengja mismunandi búnað við hússtjórnarkerfi.

Hæfniviðmið:
Nemandi skal geta hagný þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
  • velja og tengja búnað fyrir kerfi.
  • forrita og tengja þráðlausan sendi og móttakara.
  • forrita flóknari hússtjórnarkerfi.

 

Námsmat:
Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.