LÝSI3LL02 - Lýsingartækni - Ljósgjafar, lýsingarhönnun og neyðarlýsing

Lýsing

Áhersla er lögð á að nemandi tileinki sér undirstöðuþætti lýsingar í samræmi við gildandi reglugerðir. Einnig er lögð áhersla á geislun, ljós og liti, ljósgjafa, hagnýta

útfærslu og ljósmælingar. Nemandi fær kynningu á neyðarlýsingu og reglugerðum tengdum henni.

Forkröfur: RAFM2RS05B, RAFL2RT04B

Þekkingarviðmið

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
  • mismunandi gerðum ljósgjafa með tilliti til ljósdreifikúrfa og ljósnýtni.
  • beinni og óbeinni lýsingu.
  • ljóslit (ljóshitastigi) og litarendurgjöf.
  • mismunandi ljósdreifingu.
  • ljósmælingum.
  • reglum, uppsetningu og gerðum neyðarlýsingar.

 

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • velja viðeigandi búnað sem hentar við mismunandi aðstæður með tilliti til umhverfis, litarendurgjafar og endurkasts.
  • framkvæma ljósmælingar.

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • framkvæma áhttumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
  • útskýra heiti og hugtök er varðar lýsingu.
  • skilja niðurstöður ljósmælinga.

 

Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.