RAFV3RS04 - Rafvélar

Lýsing

Viðfangsefni: Rafvélar, ræsibúnaður og spennar

Lýsing: Áhersla er lögð á rafvélar þ.e. rafala, mótora og spenna bæði jafnstraums-, einfasa- og þriggjafasa riðstraums.

Forkröfur: RAFM3RR05D og STÝR3HV04C

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • mikilvægi faglegra vinnubragða og öryggis s.s. varnarbúnað og persónuöryggi.
  • merkiskiltum og upplýsingarriti fyrir rafvélar.
  • virkni rafala, mótora og spenna.
  • tengimáta mismunandi ræsiaðferða.
  • legubúnaði og teiknitáknum rafvéla.
  • virkni mjúkræsa og tíðnibreyta.
  • tengingum og mælingum á rafvélum.

 

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • tengja ýmis konar rafvélar við mismunandi ræsibúnað og neysluveitur.
  • tengja þriggja fasa rafmótora við hraðastýringar og mjúkræsa.
  • framkvæma mælingar á rafvélum.

 

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • framkvæma áhættumat og lágmarka þær hættur sem geta skapast við vinnu.
  • setja upp og keyra rafmótor samkvæmt teikningu.
  • gera helstu mælingar í kraft- og stýrirás mótora.
  • greina bilanir í rafmótorum og stýringum.
  • skipta um algengar legur og kol.
  • tengja 3ja fasa rafmótor með tíðnibreyti og mjúkræsi.

 

Námsmat: Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat með leiðsögn og að reglum sem kveðið er á um í skólanámskrá sé fylgt.