Hér setjum við inn upplýsingar tengdar sóttvörnum og FÍV fyrir haustið 2021
Sóttvarnarreglur skólans
1. Ekki mæta í skólann ef:
- Þú ert með einkenni sem líkjast Covid-19 einkennum (kvef, hósta, hita, höfuðverk, bein- eða vöðvaverki, þreytu).
- Þú ert í einangrun vegna COVID-19.
- Þú bíður eftir niðurstöðu sýnatöku.
- Þú ert í sóttkví.
- Tilkynntu veikindin eins fljótt og hægt er á Innu.
2. Ef þú finnur fyrir einkennum eftir að þú mætir í skólann:
- Farðu strax heim.
- Láttu kennarann vita eða tilkynntu veikindin á Innu eins fljótt og hægt er.
3. Sprittaðu hendur um leið og þú kemur inn í skólann
- Sprittstöðvar eru við alla innganga og í öllum stofum
- Ekki fara úr útiskóm og yfirhöfn, yfirhafnir eru geymdar á stólbökum í kennslustofunni
4. Virtu fjarlægðarmörk – minnst 1 metri
- virðum ávallt gildandi hámarksfjölda og fjarlægðarmörk
- Einnota grímur eru við alla innganga nemendum og starfsfólki að kostnaðarlausu. Nemendur/starfsfólk mega einnig koma með eigin grímur.
- Mikilvægt er að kynna sér leiðbeiningar landlæknis sem gilda á hverjum tíma um notkun á grímum.
- Einnota grímum skal ávallt henda í ruslið eftir notkun.
- Margnota grímur þarf að þvo daglega að lágmarki á 60 gráðu hita.
5. Grímuskylda er í skólanum þegar ekki er hægt að virða 1 metra regluna
6. Sprittaðu hendur um leið þú kemur inn í nýtt rými
7. Í kennslustofum skal sótthreinsa við lok kennslustundar:
- Borð og stólbök
- Sameiginleg verkfæri
- Sameiginlega snertifleti
8. Notaðu hanska við í verklegri kennslu þar sem þess er krafist
- Einnota hönskum skal ávallt henda í ruslið eftir notkun
Mundu að ganga vel um og ávallt henda rusli í ruslafötur.
Mundu að reglulegur og góður handþvottur með sápu ásamt sprittun og hæfilegri fjarlægð er besta sóttvörnin!
Skólinn hvetur nemendur og starfsmenn til að vera með C-19 rakningarappið uppsett og kveikt á því í símum sínum utan sem innan skólans.
Verkferlar vegna Covid-19
Smit eða grunur um smit - nemendur
Tilkynning um sóttkví eða einangrun - nemendur
Smit eða grunur um smit - starfsfólk