45 nemendur brautskráðir frá FÍV

Brautskráning nemenda frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum fór fram við hátíðlega athöfn á sal skólans föstudaginn 29. maí síðastliðinn. Að þessu sinni voru 45 nemendur brautskráðir af fjölbreyttum námsleiðum skólans og var dagurinn bæði hátíðlegur og gleðilegur fyrir nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsfólk skólans.

Athöfnin hófst með því að gestir voru boðnir velkomnir og farið var yfir helstu atriði annarinnar. Að því loknu voru nemendur útskrifaðir. 

Við athöfnina voru veittar fjölmargar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur, félagsstörf og þátttöku í Íþróttaakademíu ÍBV og FÍV.

Íþróttaakademía ÍBV og FÍV veitti þeim nemendum sem lokið höfðu fjórum önnum eða fleiri í akademíunni sérstaka viðurkenningu. Viðurkenninguna hlutu Alexander Örn Friðriksson, Ásdís Halla Hjarðar, Birna Dís Sigurðardóttir, Birna María Unnarsdóttir, Elís Þór Aðalsteinsson, Erna Sólveig Davíðsdóttir, Ólafur Már Haraldsson og Viggó Valgeirsson.

Sjúkraliðafélag Vestmannaeyja veitti nýútskrifuðum sjúkraliðum viðurkenningu. Hana hlutu Inga Lára Pétursdóttir og María S. Sigurbjörnsdóttir.

Drífandi stéttarfélag veitti viðurkenningu til nemenda sem starfað höfðu í stjórn nemendafélags skólans í eitt skólaár eða meira. Viðurkenninguna hlutu Alexandra Ósk Viktorsdóttir, Elís Þór Aðalsteinsson, Erna Sólveig Davíðsdóttir, Eva Magnúsdóttir, Guðjón Emil Ómarsson, Hrafnhildur Hallgrímsdóttir og Selma Rós Buelow Rafnsdóttir.

Danska sendiráðið veitti viðurkenningu fyrir góðan árangur í dönsku og hana hlaut Alexandra Ósk Viktorsdóttir.

Skólinn veitti viðurkenningu fyrir frábæran árangur í spænsku og hana hlaut Hrafnhildur Hallgrímsdóttir.

Sögufélagið veitti viðurkenningu fyrir mjög góðan árangur í íslensku og hana hlaut Alexandra Ósk Viktorsdóttir. Sögufélagið veitti einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í sögu og hana hlaut Rebekka Rut Rúnarsdóttir.

Menntaverðlaun Háskóla Íslands eru veitt framhaldsskólanemum sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á stúdentsprófi. Verðlaunin hlaut Hrafnhildur Hallgrímsdóttir.

Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík eru veitt fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Verðlaunin hlaut Hrafnhildur Hallgrímsdóttir.

Skólinn veitti einnig viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur í námi. Hrafnhildur Hallgrímsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir hæstu meðaleinkunn. Alexandra Ósk Viktorsdóttir og Erna Sólveig Davíðsdóttir hlutu einnig viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi.

Skólameistari flutti ávarp til útskriftarnema og gesta áður en skólaslit fóru fram.

Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum óskar öllum brautskráðum nemendum og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með áfangann. Við þökkum þeim fyrir samveruna og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Brautskráðir nemendur vorið 2026

Nafn    Námsbraut
Ailandas Baurinas  - Húsasmíðabraut og iðnmeistaranám
Alexander Örn Friðriksson  - Stúdentsbraut – opin lína
Alexandra Ósk Viktorsdóttir  - Stúdentsbraut – félagsvísindalína
Andri Kristinsson  - Iðnmeistaranám
Anna Fríða Káradóttir  - Starfsbraut
Anton Már Óðinsson  - Iðnmeistaranám
Aron Stefánsson  - Húsasmíðabraut
Ágúst Guðmann Úlfarsson  - Iðnmeistaranám
Ágúst Sævar Einarsson  - Húsasmíðabraut
Ásdís Halla Hjarðar  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Birgir Nielsen Þórsson  - Húsasmíðabraut
Birna Dís Sigurðardóttir  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Birna María Unnarsdóttir  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Claes Olov Engelbrektsson  - Húsasmíðabraut
Dovidas Norkus  - Húsasmíðabraut
Elís Eduardo Magnason  - Iðnmeistaranám
Elís Þór Aðalsteinsson  - Stúdentsbraut – opin lína
Emilíana Erla Ágústsdóttir  - Stúdentsbraut – félagsvísindalína
Erna Sólveig Davíðsdóttir  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Eva Magnúsdóttir  - Stúdentsbraut – félagsvísindalína
Felix Örn Friðriksson  - Húsasmíðabraut
Gabríel Þór Vestmann Gunnarsson  - Iðnmeistaranám
Garðar Heiðar Eyjólfsson  - Iðnmeistaranám
Gauti Þorvarðarson  - Iðnmeistaranám
Guðjón Emil Ómarsson  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Guðmundur Jón Magnússon  - Iðnmeistaranám
Gunnar Rafn Ágústsson  - Húsasmíðabraut og iðnmeistaranám
Gunnar Þór Guðjónsson  - Iðnmeistaranám
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Inga Lára Pétursdóttir  - Sjúkraliðabraut
Jón Helgi Sveinsson  - Iðnmeistaranám
Jökull Orri Gylfason  - Viðbótarnám til stúdentsprófs
Konstantinas Zapivalovas  - Húsasmíðabraut
Lordiar Emefa Akosua Adzaho  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
María S. Sigurbjörnsdóttir  - Sjúkraliðabraut og viðbótarnám til stúdentsprófs
Ólafur Már Haraldsson  - Stúdentsbraut – náttúruvísindalína
Óskar Elías Sigurðsson  - Húsasmíðabraut og viðbótarnám til stúdentsprófs
Rebekka Rut Rúnarsdóttir  - Stúdentsbraut – félagsvísindalína
Rebekka Svava Sigurjónsdóttir  - Húsasmíðabraut
Selma Rós Buelow Rafnsdóttir  - Stúdentsbraut – opin lína
Sindri Georgsson  - Iðnmeistaranám
Valur Smári Heimisson  - Húsasmíðabraut
Viggó Valgeirsson  - Stúdentsbraut – opin lína
Þorgerður Katrín Adolfsdóttir  - Stúdentsbraut – opin lína
Þórhallur Orri Steinsson  - Iðnmeistaranám