Erasmus heimsókn til Sevilla í mars 2025

Dagana 28. mars til 4. apríl fóru fjórir nemendur FÍV ásamt kennurum í ferð til Spánar í tengslum við Erasmus-verkefni skólans. Ferðin hófst með siglingu frá Eyjum á föstudegi og snemma morguns daginn eftir var haldið af stað til Malaga. Þar tók á móti okkur sól og blíða – ekki slæm byrjun! Dagurinn var notaður til að njóta, skoða borgina og kíkja í nokkrar verslanir áður en haldið var með rútu til Sevilla daginn eftir.

Í Sevilla tók spænski hópurinn á móti okkur og hófst formleg dagskrá verkefnisins. Í þetta sinn var fókusinn á stjórn vatnamála og nýsköpun, með það markmið að efla skilning nemenda á m.a. mikilvægi nýsköpunar þegar kemur að sjálfbærri vatnsnotkun, tilgangi vatnatilskipun Evrópusambandsins, meðhöndlun og hreinsun vatns, sem og losun þess.

Dagskráin var bæði fræðandi og fjölbreytt. Hópurinn heimsótti friðlýsta náttúrusvæði, La Lantejuela, þar sem hreinsað affallsvatn er nýtt til að skapa búsvæði fyrir fjölbreytt dýralíf – lifandi dæmi um hvernig hægt er að umbreyta úrgangi í verðmæti. Þá var einnig farið í bæinn Mairena del Alcor þar sem hópurinn skoðaði vatnsleiðslukerfi frá tímum Rómverja og sá með berum augum hve langt við höfum komið í vatnsstjórn síðan þá.

Enn önnur heimsóknin var í Carambolo vatnshreinsistöðina, þar fengum við innsýn í vatnssöfnun og hreinsun drykkjavatns svæðisins. Við fengum einnig að skoða vatnstankana og sjá öll stig ferlisins: frá söfnun til dreifingar. Að heimsókn lokinni röltum við yfir í Arboreto grasagarðinn, nutum sólargeislanna og fengum okkur hádegismat í fallegu umhverfi sem væri ekki til ef ekki væri fyrir mikla áherslu svæðisins á sjálfbæra vatnsnotkun.

Því miður var ekki sól og blíða allan tímann úti á Spáni, og eftir vinnudag upp í skólanum var rigningardagurinn nýttur til að fara með hópinn í skoðunarferð um sjálfa Alcázar höllina, sem er elsta höll Evrópu sem er enn í notkun og er vægast sagt mögnuð.

Fræðslan þessa dagana var mikil og verkefnavinnan gekk mjög vel. Nemendur FÍV stóðu sig frábærlega! Það er óhætt að segja að þær slógu í gegn bæði hjá kennurum og nemendum hinna landanna, og voru skólanum til mikils sóma. En ferðin var ekki einungis vinna, það var skoðað, verslað og notið þess að borða góðan mat. Nemendur skólanna náðu mjög vel saman, margar skemmtilegar stundir á og utan skólatíma - fjöldinn allur af minningum skapaðar á þessum dögum. Á lokakvöldinu var viðurkenningarathöfn fyrir vel unnin störf og sameiginlegur kvöldmatur í skólanum þar sem spænsku fjölskyldurnar buðu upp á fjölbreyttan heimilsmat.

Ferðalagið heim gekk mjög vel. Hópurinn tók hraðlest frá Sevilla til Madríd þar sem töskunum var komið í geymslu og borgin skoðuð á methraða. Fegurð Madridar leyndi sér ekki, en þess má geta að gríðarlegur mannfjöldi og þrengslin í metrolestum borgarinnar var eflaust eitt stærsta menningarsjokk ferðarinnar. Eftir sjö góða klukkutíma í Madrid var farið uppá flugvöll og hópurinn flaug með Iberia flugfélaginu beint til Keflavíkur. Allir eru sammála um að þessi ferð hafi verið algjörlega frábær.

Slóð á grein sem birtist í Tíglí 4. júní 2025