Gengu á Fimmvörðuháls í blíðskaparveðri

FimmvörðuhálsNemendur, starfsfólk og vinir skólans lögðu af stað í göngu yfir Fimmvörðuháls á dögunum og heppnuðust aðstæður einstaklega vel. Veðrið lék við hópinn allan daginn og naut göngufólk stórbrotinnar náttúrufegurðar á leiðinni frá Skógum yfir í Þórsmörk.

Gangan, sem er orðin fastur liður í skólastarfinu, er bæði líkamleg og andleg áskorun sem styrkir þátttakendur og skapar einstaka samveru. Með í för voru einnig vinir FÍV, einstaklingar sem hafa tekið þátt í göngunni áður og veita nemendum stuðning, hvatningu og gott fordæmi á leiðinni. Þeir eru orðnir mikilvægur hluti af þeirri hefð og samfélagsanda sem hefur skapast í kringum gönguna.

Ferðin var hluti af þátttöku skólans í #BeActive – Íþróttaviku Evrópu, sem hefur það að markmiði að hvetja fólk til aukinnar hreyfingar og heilbrigðs lífsstíls. Með stuðningi frá #BeActive fékk FÍV styrk sem gerði verkefnið mögulegt og skapaði nemendum tækifæri til að upplifa eina fallegustu gönguleið landsins í góðum félagsskap.

FÍV þakkar öllum sem tóku þátt, nemendum, starfsfólki og sjálfboðaliðum, fyrir eftirminnilegan dag og góða samveru. Slík verkefni sýna vel hvernig hreyfing, útivist og samfélag geta farið saman og skapað dýrmætar minningar.