Innritun á haustönn er hafin

Innritun fer fram á menntagatt.

Rafræn innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða stendur yfir dagana 1. til 28. febrúar. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir umsóknir sem berast eftir þann tíma. Stefnt er að afgreiðslu allra umsókna á starfsbrautir fyrir lok apríl.

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 2001 eða síðar) hefst mánudaginn 6. mars og lýkur mánudaginn 10. apríl. Nemendur fá bréf frá Menntamálastofnun með veflykli að innritunarvef og leiðbeiningum sem afhent verður í grunnskólunum. Foreldrar/forráðamenn nemenda fá bréf í pósti frá Menntamálastofnun með upplýsingum um innritunina. Nemendur í 10. bekk eru eindregið hvattir til að taka þátt í forinnrituninni.

Innritun eldri nemenda (fæddir 2000 eða fyrr) sem eru ekki í framhaldsskóla sem stendur eða ætla að skipta um skóla hefst mánudaginn 3. apríl og lýkur miðvikudaginn 31. maí. Umsækjendur 17 ára og eldri nota auðkenni frá island.is eða rafræn skilríki á greiðslukorti. Ef sótt er um Íslykil á netinu er hægt að velja um að fá hann sendan á lögheimili, sem tekur 2-5 virka daga eða í netbanka, sem skilar sér samdægurs (undir „rafræn skjöl“). Rafræn persónuskilríki er hægt að sækja um hjá viðskiptabanka.

Lokainnritun nemenda í 10. bekk verður 4. maí til 9. júní

Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum úr forinnritun til miðnættis föstudagsins 9. júní. Einkunnir þeirra verða sendar rafrænt frá grunnskólum til framhaldsskóla eftir skólaslit.