Innritun fyrir haustönn 2025 lýkur á miðnætti sunnudaginn 9. júní. Að henni lokinni tekur við vinnsla á umsóknum og stefnt er á að henni verði lokið 20.júní.
Upphaf skólaárs 2025–2026:
15. ágúst: Starfsdegur hjá starfsfólki skólans og stundatöflur nemenda opna.
15. - 18. ágúst: Rafrænar stundatöflubreytingar (nemendur fæddir 2009 - nýnemar fá aðstoð við töflubreytingar ef þörf er á 18. ágúst).
18. ágúst: Nýnemadagur (nánari tímasetning auglýst síðar). Nemendur fæddir 2009 taka þátt í vinnustofum þar sem þau fá kynningu á náms- og kennlsuumhverfi skólans.
19. ágúst: Fyrsti kennlsudagur haustannar
Við óskum öllum nemendum og starfsfólki gleðilegs sumars og hlökkum til að hefja nýtt og spennandi skólaár með ykkur í ágúst!