Fyrir hvorki fleiri né færri en 40 árum síðan útskrifuðust 12 nemendur frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum sem nýstúdentar við hátíðlega athöfn í bíósalnum við Heiðarveg. Jafnframt luku níu nemendur verslunarprófi, þrír iðnskólaprófi, tveir í grunndeild málmiðna, tveir vélstjóranámi 2. stigs, fimm vélavarðapróf og fjórir undanþágunámskeiði fyrir vélstjóra. Einnig var boðið upp á nám í öldungadeild við skólann og stunduðu 30 nemendur nám í deildinni.
Við vorum þriðji hópur nýstúdenta sem útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Við upplifðum að hefja námið í FÍV 1982 þar sem Tónlistarskóli Vestmannaeyja er nú til húsa við Heiðarveg. Ári síðar fluttum svo í gamla gagnfræðaskólann þar sem skólinn er til húsa enn þann dag í dag. Fyrir 40 árum voru um 200 nemendur við skólann og fastráðnir kennarar 8 og stundakennarar 15, að því er fram kemur í frásögn Morgunblaðsins frá skólaslitunum. Ólafur H. Sigurjónsson var skólameistari á þessum tíma. Blessuð sé minning hans. Athygli vakti að þáverandi menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, var viðstaddur skólaslitin og ávarpaði gesti.
Félagslífið var sérlega eftirminnilegt á þessum árum. Árshátíð FÍV var haldin í Hallarlundi og þangað mættu kennarar og skemmtu sér konunglega með nemendum. Fyrir 40 árum tókum við þátt í Morfís, rökræðukeppni framhaldsskóla á Íslandi, héldum ýmis íþróttamót, fórum í eftirminnilegar heimsóknir til Reykjavíkur og máluðum þar bæinn rauðan og dimmiteruðum svo í Bárustígum eldsnemma að morgni og enduðum á kennarastofunni í lok dags, okkar ástsælu kennurum til mikillar gleði. Þá var haldin opin vika þar sem við starfræktum m.a. útvarp undir nafninu Þvag-rásin og brutum upp skólastarfið með skemmtilegum hætti.
Á þessum tímamótum, 40 árum eftir útskrift okkar sem nýstúdentar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum, hugsum við til gamla skólans okkar með miklum hlýhug. Námið við FÍV reyndist okkur einstaklega góður grunnur fyrir lífið. Tilvist FÍV þykir eflaust sjálfsagður hlutur í dag en var sannarlega bylting fyrir Vestmannaeyinga á sínum tíma sem þurftu ekki lengur að sækja framhaldsskólamenntun út fyrir bæjarfélagið, eins og fyrir okkar góða hóp. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur verið ein styrkasta stoðin í Eyjasamfélaginu frá því haustið 1979 þegar hann varð til við samruna framhaldsdeilda Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum, Vélskólans í Vestmannaeyjum og Iðnskólans í Vestmannaeyjum. FÍV hefur vaxið og dafnað og er í fremstu röð í dag. Mikið gleðiefni var að sjá þegar FÍV hlaut Íslensku menntaverðlaunin 2025 í flokk iðn- og verkmenntunar sem hefur verið byggt upp af metnaði. Innilegar hamingjuóskir.
Elsku Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum. Kærar þakkir fyrir veganestið út í lífið. Takk fyrir að mennta börnin okkar. Til hamingju kæru nýstúdentar og aðrir útskriftanemar FÍV 2026.
Takk fyrir okkur. Nýstúdentar frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum árið 1986:
Arnar Jónsson
Bergur Elías Ágústsson
Bjarni Diðrik Sigurðsson
Hafdís Hannesdóttir
Inga Óskarsdóttir
Kjartan Erlendsson
Margo Renner
Sigmar Valur Hjartarson
Sigurður Friðriksson
Stefán Viktor Guðmundsson
Þorsteinn Gunnarsson
Þröstur Gunnarsson