Innritun í Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum fyrir komandi skólaár er nú lokið og undirbúningur fyrir haustönn kominn á fullt. Ljóst er að skólinn verður þétt setinn í haust og mikil gleði er með þann áhuga sem nemendur sýna námi við skólann.
Að þessu sinni var ekki unnt að veita öllum umsækjendum skólavist. Þeir nemendur sem ekki fengu skólavist, en hafa áfram áhuga á námi við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum, geta óskað eftir að vera settir á biðlista með því að senda tölvupóst á skrifstofa@fiv.is.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum býður upp á fjölbreytt nám, bæði bóknám og starfsnám, og leggur áherslu á gott námsumhverfi, nánd, stuðning og sterka tengingu við samfélagið í Vestmannaeyjum. Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og er lykilstofnun þegar kemur að menntun, tækifærum ungs fólks og áframhaldandi uppbyggingu í Eyjum.
Nú tekur við vinna við stundatöflugerð, lokafrágang námsvals og undirbúning móttöku nemenda í ágúst. Sérstök áhersla verður lögð á að taka vel á móti nýnemum og styðja alla nemendur inn í skólastarfið með skýru skipulagi, góðri upplýsingagjöf og þeirri þjónustu sem skólinn býður upp á.
Skólastarf hefst í ágúst og verða nánari upplýsingar um skólabyrjun, stundatöflur og móttöku nemenda birtar á heimasíðu skólans þegar nær dregur.