Nemendur FÍV taka þátt í mótun framtíðarinnar

Tveimu
Tveimu

Tveimur nemendum Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum var boðið að taka þátt í vísindasmiðju á Vísinda- og nýsköpunarþinginu sem haldið var 24.–25. september síðastliðinn.

Þar fengu ungmenni tækifæri til að láta rödd sína heyrast og koma með hugmyndir um framtíð Íslands, meðal annars á sviði menntunar, gervigreindar, nýsköpunar og sjálfbærni.

Þingið tókst afar vel og mun Vísinda- og nýsköpunarráð taka tillögur nemendanna til frekari umfjöllunar.

Það er ánægjulegt að nemendur FÍV hafi fengið þetta tækifæri til að taka þátt í umræðu um framtíð vísinda og nýsköpunar á Íslandi.