Opnað fyrir stundatöflur og töflubreytingar í INNU

Stundatöflur nemenda verða aðgengilegar í INNU þriðjudaginn 18. ágúst. Frá sama degi verður einnig hægt að óska eftir breytingum á stundatöflu.

Töflubreytingar fara fram í INNU dagana 18.–21. ágúst. Nemendur sem þurfa aðstoð við töflubreytingar geta einnig fengið aðstoð í skólanum þessa daga.

19. ágúst – Nýnemadagur 

Nýnemadagur er ætlaður nemendum sem koma beint úr grunnskóla.

Nýnemar mæta miðvikudaginn 19. ágúst kl. 13:00 á sal skólans. Þar hitta þeir umsjónarkennara sína og fá meðal annars kennslu og leiðsögn í upplýsingatækni.

Nemendur eru beðnir um að hafa með sér, nýuppfærða fartölvu og rafræn skilríki.

20. ágúst – Kennsla hefst

Kennsla í dagskóla hefst fimmtudaginn 20. ágúst samkvæmt stundatöflu.

Við hlökkum til að taka á móti nemendum og hefja nýtt skólaár.