Rökræður á ensku í FÍV

Nemendur í ensku við Framhaldsskólann í Vestmannaeyjum spreyttu sig á rökræðum fyrir framan áhorfendur dagana 14. og 15. október.

Rökræðurnar fóru fram í tveimur hópum þar sem nemendur þurftu að setja fram rök, verja sjónarmið sín og bregðast við málflutningi annarra – allt á ensku.

Verkefnið reynir ekki aðeins á tungumálakunnáttu heldur einnig gagnrýna hugsun, röksemdafærslu, sjálfstraust og hæfni til að koma fram fyrir aðra.

Kennurum var boðið að fylgjast með og taka þátt í mati á frammistöðu nemenda.

Rökræðurnar eru gott dæmi um fjölbreytt og metnaðarfullt skólastarf þar sem nemendur fá tækifæri til að þjálfa hæfni sína í raunverulegum aðstæðum