Útskrift haustannar 2020

Viðburðinum verður streymt í gegnum Youtube, hefst athöfnin stundvíslega kl. 16:00 og er áætlað að hún taki um klukkustund

Ábending til nemenda varðandi útskriftardaginn
Hér koma nokkur atriði til nemenda er varða útskriftardaginn:


• Við hvetjum alla nemendur til þess að vera spariklædda.

• Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem eiga útskriftarhúfur til að setja þær upp.

• Það er ætlunin að safna skemmtilegum myndum á Instagram undir myllumerkinu #fivutskrift og hvetjum við nemendur til að taka þátt þar.

Þessi útskrift veður ekki á þann hátt sem við hefðum helst kosið í veirufríu landi. En það er alveg víst að hún verður engri annarri útskrift sem við höfum haldið lík og við ætlum að reyna að gera hana sem eftirminnilegasta. Þar skiptir þátttaka ykkar miklu máli!
Verðum spariklædd og hress á laugardaginn.