ENSK1KV04 - Enska í kvikmyndum

Unnið verður með ensku í gegnum kvikmyndir af ýmsu tagi. Áhersla verður á að nemendur horfi á kvikmyndir og vinni jafnt og þétt upp úr þeim ýmis verkefni. Nemendur verða hvattir til að velta fyrir sér hver boðskapurinn í viðeigandi kvikmynd er. Nemendur taka niður orð og þýða eftir hvert áhorf, vinna ýmis verkefni upp úr söguþræðinum og setja íslenskan texta við enskar myndir.

Slóð á áfanga í námskrá