ÍSLE1UN05 - Lestur og ritun (undirbúningsáfangi)

Í þessum áfanga er lögð áhersla á að undirbúa nemendur undir frekara nám í íslensku á framhaldsskólastigi með því að fara í undirstöðuatriði málfræði, stafsetningar, ritunar og bókmennta. Jafnframt er markmiðið að efla ábyrgðartilfinningu nemenda gagnvart sjálfum sér, námi sínu og umhverfi. Áhersla er lögð á fjölbreyttar nálganir og sérstaklega er unnið með sköpun. Nemendur eru hvattir til að setja sér eigin markmið m.a. með því að taka þátt í að velja skiladaga á verkefnum. Í áfanganum þjálfast þeir í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt því að þeir fá tækifæri til að vinna með öðrum. Málfræði og málnotkun: Nemendur vinna með undirstöðuatriði málfræðinnar til að bæta málskilning og málnotkun. Nemendur lesa einnig margvíslega texta til að auka orðaforða sinn. Stafsetning: Nemendur vinna stafsetningarverkefni og þjálfa sig í því að nýta sér stafsetningarreglur og önnur hjálpargögn til að bæta stafsetningu sína. Ritun: Nemendur þjálfa sig í að rita fjölbreytta texta. Nemendur þjálfa sig einnig í byggingu ritsmíða og röksemdarfærslu ásamt því að nýta sér ýmis konar hjálpargögn, svo sem handbækur, orðabækur og leiðréttingaforrit. Bókmenntir: Bókmenntatextar eru valdir með það að markmiði að efla minni, skilning og orðaforða. Nemendum eru kynnt grunnhugtök bókmennta. Samskipti og framsögn:Nemendur taka þátt í umræðum og þjálfast í upplestri og framsögn.

Slóð á áfanga í námskrá