RÖKR3VB04 - Rökrásir 1 - grunnáfangi

Nemendur öðlast undirstöðuþekkingu í gerð rökrása og fá þjálfun í hönnun og greiningu á einföldum rökrásum, tengingum og forritun þeirra. Þeir þjálfast í að setja saman og tengja rökrásahlið fyrir ákveðna virkni, skrifa formúlu samsettrar rásar og prófa virkni hennar. Nemendur öðlast þekkingu og skilning á því hvernig hægt er að byggja upp rökrásavirkni í iðntölvum og forritanlegum rökrásum. Þeir kynnast hugtökunum forrit (program), stigarit (ladder) og rim (network) og fá þjálfun í að setja upp einfalda stýringu í tölvunni og þjálfun í að tengja búnað við inn- og útganga. 

Slóð á áfanga í námskrá